10.01.2012 17:08
Vetur konungur.

En þetta veður, manni langar helst bara að kúra sig ofan í sófa, í náttfötum, með heitt súkkulaði (með stroh, hee) og bók eða ps3. Þótt bókin mín þessa vikuna sé skólabók og það sé ekkert ps3 hjá mér fyrr en í fyrsta lagi á sunnudaginn. En maður má láta sig dreyma.
Þess vegna ætla ég að skella mér í body pump og taka smá á því fyrir lærdómskvöld, það held ég nú!

E.
Skrifað af Erna
09.01.2012 18:12
2012
Gleðilegt nýtt ár elsku lesendur þessa alltof líflausa bloggs!





Ég átti ósköp indæl jól. Fékk þetta fína frí í vinnunni og skellti mér heim í heiðardalinn, oftast nefndur Paradís í bókmenntunum. Fríið fór eiginlega allt í afslappelsi, náttföt og kósý allan daginn með familíunni (leeeeim ég veit en ó svo notalegt!).
Í nokkrum stikkorðum var fríið svona; fór á hjónaball og tók einn hring eða svo, lærði flip cup, prjónaði eins og enginn væri morgundagurinn, hélt brennu, las, horfði á bíómyndir og borðaði fyrir allan peninginn. Vildi svo ekki fara suður aftur, onei.
Skelli inn nokkrum myndum þar sem það er ekki nóg að setja þær á fb, hehe.


Áramótabrennan


Myndarlegu bræður mínir.

Ást.
Skrifað af Erna
Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 40
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 89053
Samtals gestir: 25710
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 14:55:26

