Blogg

27.2.2008

Áttu ælupoka?

Eurovision, eurovision. Það er það eina sem talað er um elsku besta eurovision. Voðalega er ég komin með mikið leið á þessari keppni. Eða réttara sagt öllu umstanginu í kringum hana. Síðastliðinn laugardag var framlag Íslands valið, og nota bene - það var 23 febrúar. Eurovision keppnin verður hins vegar ekki haldin, samkvæmt ekki svo mjög áræðanlegum heimildum, fyrr en í lok maí. Þetta þýðir að við eigum eftir að fá 3 mánuði, já takk fyrir, af eurovision umræðum, lögum og viðtölum.
Ég segi að Ísland eigi að hætta þessu Eurovision kjaftæði, við vinnum hvort sem er aldrei, og nota frekar peninginn sem fer í þessa keppni til að hjálpa bágstöddum.
Tja, og ef ekki að hætta þessu, þá heldur að syngja bara á okkar ástkæra og ylhýra tungumáli, íslensku.

By the way, ég vildi að the Merzedes Club myndi vinna þetta, því hvað er skemmtilegra en að sjá heita stráka, úr að ofan, og berja á trommur? Allavega ekki dillandi hommi ;)
















E r n a

p.s. ég hef samt ekkert á móti hommum.

Skrifað 27.2.2008 kl. 11:03 af Erna

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.2.2008

Hvað vil ég verða?

Ég fór a rifja upp allt sem mig dreymdi um að verða þegar ég var lítil, eftir lífsleiknitímann í dag þar sem við vorum að spjalla um atvinnu.
Hér eru nokkur brot sem mér datt í hug:
  • Bankastarfsmaður (því mamma var það)
  • Afgreiðslumaður í búð (því mamma var það)
  • Hárgreiðslukona (því Sigurbjörg var það)
  • Förðunarfræðingur (því Ragnheiður var það)

Í dag efast ég um að ég verði e-ð af þessu. En það er gaman að sjá hverjir höfðu áhrif á mann á yngri árum.

Þótt pabbi sé ekki á þessum lista þá langaði mig alltaf til að verða jafn fyndin og skemmtileg og hann. Alltaf að segja brandara og náði að gera allt svo skemmtilegt. Ég get ekki dæmt um það sjálf hvort sá draumur hafi ræst eða ekki, ehe.


E r n a

Skrifað 25.2.2008 kl. 12:37 af Erna

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.2.2008

Góða nótt

Á morgun er konudagur og þar sem ég er kona þá ætla ég að gera mér glaðan dag og dekra aðeins við mig. Þar sem enginn mun bjóða mér út að borða ætla ég að elda mér e-ð gott í kveldmatinn. Var að hugsa um núðlur;)

Pabbi á líka afmæli á morgun, til hamingju með það ;*

Dagurinn í dag fór ALLUR í vinnu! Fór í vinnuna kl 10:00 í morgun og var búin klukkan 22:30, takk fyrir pent. Svo er það aftur vinna á morgun. Það verður ljúft að fá útborgað! :)

Svo til að setja toppinn á tilveruna, þá er ég orðin lasin. Væri bara mest til að liggja í rúminu allan morgundaginn. Það verður bara að bíða þangað til næstu helgi, tja eða þarnæstu.

Ég skammast mín samt fyrir að vera 19 ára, það trúir enginn að ég sé það! :( Svo ég ætla bara að vera 17 ára, alltaf. Ég held að það sé besta lausnin, þá þarf fólk ekki að gapa af undrun þegar það spyr mig hvað ég sé gömul og ég svara; nítján.  


E r n a

Skrifað 24.2.2008 kl. 0:57 af Erna

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.2.2008

Rauðhærða skrímslið & sæti strákurinn

Ég fékk svo góðan innblástur áðan, man samt ekki hvort hann tengdist því að blogga eða fara að sofa, ég valdi allavega blogga. ehe.

Mig langar í / vantar myndavél. Á engar nýjar myndir og vantar þær sárlega. Svolítið leiðinlegt að vera alltaf að post-a gömlum myndum. Svo er líka bara svo gaman að geta tekið myndir þegar maður vill, ef það kemur e-ð gott moment, sem gerist heldur oft þessa dagana. Kannski finnst mér það bara því ég á ekki picturemachine? måske.

Ég kafnaði samt næstum því áðan, það munaði hársbreidd. Var með Opal og búin að bíta það í helminga. Svo gerðist e-ð fyndið og ég sprakk úr hlátri, þetta var í e-ð af þeim skiptunum sem Nína lét okkur líta út eins og fífl;), og annar helmingurinn hrökk ofan í mig. En sem betur fer kom það upp aftur svo ég er á lífi í dag. En það er ekki með krakkanna hjálp, takk! :)

Þið vitið setningar sem eru út um allt. T.d. Allir strákarnir voru að dansa við stelpur nema Ágúst, hann dansaði við strákúst. Og, allir krakkarnir fóru upp úr sjónum þegar hákarlinn kom nema Linda blinda, hún var ennþá að synda. Það eru ekki til neinar svona setningar með Erna í, svo ég bjó til eina.
Allar stelpurnar voru Silvía Nótt á öskudaginn nema Erna, hún var ferna. 
Er ég ekki klár?

En ég ætla að segja þetta gott í bili, og fara í bælið.


E r n a

P.s. Þessi mynd kom þegar ég "gúglaði" Erna Valborg, held að þetta sé tekið í fermingunni hjá strákunum.

Skrifað 20.2.2008 kl. 23:40 af Erna

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.2.2008

Hot as ice

Ég á ekki eftir að vera góð húsmóðir, onei. Allavega ekki í fataþvotti. Það er svoooo leiðinlegt að  brjóta saman og ganga frá þvotti, úff. Og þegar ég hugsa til baka þá finnst mér eins og Þóra amma hafi alltaf verið að því, enda mikið af þvotti hjá 6 manna fjölskyldu, mér finnst samt alveg nóg af þvotti hjá mér núna! ha ha. Ég er ekki að standa mig í þessu.

Jaaaá, hmmm... eruði að fylgjast með One Tree Hill eða?? Bestu þættir í heiiiimi, sem eru í gangi núna! En ef þið eruð ekki að fylgjast með þeim þá mæli ég með að þið hendið ykkur fyrir framan sjónvarpið á mánudagskveldið klukkan 20 og skiptið á skjá 1;)

Þetta er nú ósköp lélegt blogg. Ég er e-ð svo andlaus, langaði samt að blogga. =/

Ég er samt byrjuð að borða vel og hollt, fyrir utan tvö síðustu kveld heima hjá Kötu, og hreyfa mig reglulega og er planið að líta svona út eftir nokkra mánuði.

Hver er memm í átakinu "hot as ice" ?

E r n a

Skrifað 19.2.2008 kl. 18:12 af Erna

Bein slóð á færslu

14 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.2.2008

Það er stundum gott að vera ung, en stundum ekki !

Skoða nánar

13.2.2008

miðvikudagar til mæðu

Skoða nánar

12.2.2008

Flokk jú !

Skoða nánar

11.2.2008

Veriði hjartanlega velkomin

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 31
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 46248
Samtals gestir: 13059
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 15:23:22