Blogg
28.3.2008
81 dagur í útskrift
Á miðvikudaginn í næstu viku legg ég leið mína suður, ásamt öllum í bekknum mínum. Svo er ferðinni heitið til útlanda. Ég er orðin svolítið spennt, og það verður gaman að sjá hvert ég fer en ég fæ ekki að vita það fyrr en á Leifsstöð um 5 leytið á fimmtudagsmorgninum. Ég kem svo aftur á klakann á sunnudeginum 6. apríl og norður þann 7. svo þetta verður bara stutt en vonandi gaman :)
Ég ætla að segja þetta gott í bili og taka aðeins til áður en ég fer í vinnuna. Eigið góða helgi ;*

sæææti ;*
E r n a
26.3.2008
fréttir úr h9
- Oddný er stolt af fallega hálsmeninu sem Haukur gaf henni í afmælisgjöf, ætli það sé gifting í vændum?
- Lára er södd og sæl eftir Subway með Birni og með hárið í krúttlegri fléttu.
- Silja er krúttlega hás og að bíða eftir draumaprinsinum í apple tölvunni sinni.
Þetta eru kvenskörungarnir sem sitja nú við hlið mér.
- Ég er ekki búin með páskaeggið mitt, á enn helminginn eftir, samt þurfti ég að tuða yfir því að ég fengi bara páskaegg nr. 4!
- Brjóstin á Oddný eru að stækka, ég held að hún sé ólétt :D
- Það er aðeins vika þangað til ég legg land undir fót og flý klakann. Ferðinni er heitið: eitthvert.
- Hún Heiða á afmæli í dag, til hamingju ;*
E r n a
23.3.2008
ást við fyrsta hlust?
Ég verð að tjá ást mína á rappara, Poetrix.
Textarnir hans eru magnaðir, ekki bara; þú ert hóra og ég ætla að ríða þér í nótt. Þeir eru meira um e-ð sem skiptir máli. Þegar ég hlusta á lögin hans þá fæ ég tilfinningu sem ég get ekki lýst, þetta eru bara svo mögnuð lög og þau hitta mann beint í hjartað.
Ég ætla ekki að stelast til að setja inn textabrot heldur bara að benda ykkur á myspace-ið hans; www.myspace.com/poetrixmusic og hlustið á lögin.
Persónulega finnst mér VTG ásamt Bubba og Tileinkað Veronu best.
Oddný Lísa á afmæli í dag, innilega til hamingju með það skvís ;* :D
Ætla að halda áfram að neyða mig til að læra í þessari andskotans enskudruslu. 
E r n a , sem er nett pirruð!
22.3.2008
people always leave
Það eru 87 dagar þangað til ég útskrifast.
Jidúddamía!
Í hverju á ég að vera? =/
Ég elska <3
- rapp
- one tree hill
- góða lykt af karlmönnum
- löng frí
- bílinn minn
- Akureyri
og meira...
Langaði bara að blogga en veit eiginlega ekki alveg hvað ég á að skrifa.
Gleðilega páska, étið yfir ykkur af páskaeggjum á morgun.
E r n a
19.3.2008
afmæli & gaman
Marri á afmæli í dag, til hamingju :D
Þegar búið var að ferma Bryndísi stóðum fyrir utan kirkjuna í smástund. Ég tók í hendina á Jakob og sagði; til hamingju með systur þína. Hann svaraði; Takk og ég samhryggist með MA. Hahahaha, hann fylgdist með keppninni og hélt með MA, góður! ;)
Við systkynin kíktum til hestanna í gær, tókum nokkrar myndir og er ég búin að setja þær inn. Endlich skoðið þær, Léttir er svo sætur jiiii!
Við vorum svo á rúntinum í gær, ég, Agnes, Siggi og Fríða María, og Siggi var búinn að segja mér frá trúbador sem yrði á Fásk í kveld.
Ég; stelpur, ætliði á trúbbann á fásk annað kveld?
Agnes; hvaða trúbador?
Ég; Dj Maggi.
Siggi; nei Erna, það er Maggi trúbador!
eheh, úps.
Jæja, ég þarf að pissa.
E r n a

