Blogg

30.4.2008

Hlustið á vísdóm minn

Kæru landsmenn, nær og fjær.
Verið hjartanlega velkomin á bloggið mitt. Hér munuð þið upplifa einstaka atburði sem munu hafa áhrif á ykkur á einn eða annan hátt, ekki slæman þó. Vonandi mun ykkur líka það sem þið sjáið og berið vísdóm minn áfram um komandi ár.
Lifi ég.

Að örðum málum.

Á morgun er frí, já frí segi ég, reynið því ekki að efast um orð mín heldur opnið eyrun og leyfið vísdómnum að streyma inn.
Ég ætla að leggja leið mína í Barðstúnið, ójá, því þar mun fara fram grillveisla hjá mínum ástkæra bekk. Þar verður glens og gaman, eins og alltaf þegar svona skemmtilegt fólk kemur saman.
Ef þið hafið áhuga á hvað ég ætla að setja ofan í mig annaðkveld þá setti ég hér saman smáan lista:
-svínakjöt
-hvítlauks- eða piparsósu
-grillaðar kartöflur
-e-ð gott að drekka
Verði mér að góðu.

Ég hef hugsað mér að hafa þetta ekki lengra að sinna, heldur leyfa ykkur að ráða í sögulok með kommentum, og hef ég fulla trú á því að þið munið ekki láta mig verða fyrir vonbrigðum.

Ég kveð ykkur, kæru lesendur, á skemmtilegri mynd.


Ykkar ástkæra og ylhýra
E r n a

Skrifað 30.4.2008 kl. 13:33 af Erna

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.4.2008

Can li / Can't live



HAHAHAHAHAH CAN LÍ, vá þetta er of fyndið!

E r n a

Skrifað 23.4.2008 kl. 18:18 af Erna

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.4.2008

sunnudagur, ojj!

Smá blogg fyrir svefninn.

Helgin er búin að vera mjög góð, þrátt fyrir mikla vinnu. Ég gerði nú samt ekki mikið, nema kíkja til Nínu og Vigga, horfa á myndir og kúúúúra. Mætti svo tveimur tímum of snemma í vinnuna í dag, en það er bara smá auka peningur, ehe.

Ég er komin með alveg gríðarlegt æði fyrir þáttunum Gossip girl. ahhh, þeir alveg svoleiðis make my day! xoxo gossip girl.

Ég verð að deila með ykkur skondinni sögu úr vinnunni.
Það var kona að versla, og með henni var sonur hennar, líklega svona 4-5 ára. Við kassana eru hillur með tyggjói og nammi, en efst á hillunum eru smokkar og sleipiefni. Strákurinn sér girnilega fjólubláa flösku efst uppi (semsagt sleipiefni) og spyr mömmu sína hvort hann megi fá svona.
Hún svarar neitandi. Hann verður svolítið hvumsa og spyr hvað þetta sé.
Hún svarar; nuddolía.
Hann; hvað er það?
Hún; fullorðna fólkið notar þetta til að nudda hvort annað þegar það verður þreytt.
Hann; má ég þá fá svona þegar ég verð fullorðinn?
Hún; já.
Hann er sáttur við það en þetta var vandræðalegt móment fyrir mömmuna eigi að síður.
Gerði ég nokkurn tímann e-ð til að gera ykkur vandræðaleg 'in public'? ehhe

Ég hata sunnudaga, meira en allt. Ég er komin með skólaleiða á háu stigi. Það er alltof gott veður úti til að vera inni að læra. Allir að grilla svo Akureyri angar og mig langar alveg óstjórnlega mikið í grillmat. Hvar endar þetta?

(g)óða nótt.


E r n a

Skrifað 20.4.2008 kl. 23:24 af Erna

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.4.2008

húggala búggala vandamál

Ég er fífl!
Mér tókst að læsa bílnum, með bíllyklunum inni í honum. Já og húslyklana líka, takk fyrir pent. Ég á samt varalykil af bílnum, eeeen Steinar er með hann því hann er brotinn og hann ætlaði að reyna að gera við hann svo ekki kemur sá lykill að miklu gagni. úff.

Annars er ég ótrúlega dugleg að skella mér í ræktina eftir skóla eða vinnu. Nennti samt ekki í dag, eða jú ég ætlaði þótt ég nennti ekki en svo komst ég ekki útaf lyklaveseninu. Það besta við ræktina er samt að fara í sauna áður en ég fer í sturtu. Það er svooo þægilegt! ahhh...

Ég svaf yfir mig í dag, allan daginn. Átti samt bara að fara í 3 tíma en ég vaknaði kl 10:40 þegar síðasti tíminn var akkurat að klárast. Síminn datt sem sagt í gólfið í nótt og batteríið úr svo vekjaraklukkan hringdi ekki, og Steinar ætlaði að vera góður og hringja í mig til að vekja mig en það gekk víst heldur ekki. Svona er maður alltaf heppinn!

61 dagur í útskrift!

Mig langar í popp. Hver vill skutla mér út í búð?


E r n a

Skrifað 17.4.2008 kl. 21:22 af Erna

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.4.2008

heeeeelgi

Nú er ég á góðri leið með að verða stór. Ég tók afdrifaríka ákvörðun í gær og sótti um í háskóla. Úff. Nú er bara að bíða og vona, með krosslagða fingur, að ég komist inn.
Ég vil ekki vera búin í menntó strax. Mér finnst svo stutt síðan ég byrjaði og nú er ég bara að verða búin. Það verður nú samt vissulegur léttir að vera komin með stúdentaskírteinið í hendurnar, en það er samt svo gaman í menntaskóla! ohhh, ég á líka eftir að sakna allra svo mikið! Æjj ég ætla samt að hætta að væla núna, útskriftin er ekki alveg strax.

Það er að koma helgi. Ekkert venjuleg helgi, onei, heldur söngkeppnishelgi. Það þýðir að Akureyri verður troðfull af fólki. Það var svo gaman í fyrra. Mig langar samt ekki á söngkeppnina sjálfa, en það er nóg annað um að vera hérna. Þetta er samt í síðasta sinn, Í SÍÐASTA SINN! Ég þoli ekki þessi orð, síðasta sinn, ég vil ekki að þetta taki enda. Ég ætla að verða eilífðarstúdent.

Æjj ég er farin að bulla e-ð. Er bara að bíða eftir að þvottavélin sé búin og svo get ég farið að sofa. Ætla að kíkja fram og tjékka á henni. Góða nótt og sjáumst um helgina ! ;D


E r n a

Skrifað 10.4.2008 kl. 23:16 af Erna

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.4.2008

Þýskaland

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 28
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 46170
Samtals gestir: 13042
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 10:44:34