Blogg
25.5.2008
Minning
Söknuður
Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum,
er rökkvar, ráðið stjörnumál,
gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niðrað strönd.
Fundið stað,
sameinað
beggja sál.
Horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Því eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.
Ég gái út um gluggann minn.
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar,
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá napurt er.
Það næðir hér
og nístir mig.
Vilhjálmur Vilhjálmsson
20.5.2008
Hvað er uppi?
Núna er þetta ævintýri að verða búið, og ég vil það sko ekki! En það er samt nóóóóg að gera fram að útskrift sem verður btw eftir aðeins 28 daga. =/
Á fimmtudaginn verður sparifatadagurinn, þá komum við öll í fínum fötum í skólann og fáum kaffi og kökur með kennurunum.
Á föstudaginn er dimmisso, minn bekkur verður Grease eða The Pink Ladies og T Birds. Svo ökum við um bæinn og gefum kennurunum gjafir. Um kvöldið verður svo matur með kennurunum og e-r skemmtiatriði.
Á mánudaginn og miðvikudaginn eru svo prófin mín.
Svo verð ég bara að vinna í Bónus fram að útskrift eða réttara sagt; fram að óvissuferðinni 13. júní, kem svo austur og fer beint í Olís. Núna er ég samt í fríi frá Bónus í tvær vikur, sweet ;)
Ákvað bara að upplýsa ykkur aðeins um hvað er að gerast í mínu lífi þessa stundina. En það eru núna brjáluð verkefnaskil og lærdómur fram að prófum, jibbý!
Fórum í golf í íþróttum áðan og ég væri alveg til í að eiga golfsett og geta leikið mér að slá, það er bara nokkuð gaman. En það er rigning úti og ég ætla að kúra uppi í rúmi með bókina mína og lesa, það er það besta sem ég veit í svona veðri. Vantar samt bara að mamma búi til heitt kakó og baki kanilhnúta...mmmmm :)
Æjj ég þarf að fara í búðina, ef það vill e-r koma með mér þá vinsamlegast hringið! Ég HATA að fara ein í búðir, þótt ég sé bara að fara að versla mér e-ð í matinn, er með einhversskonar einíbúðfóbíu!
E r n a
8.5.2008
viltu?
http://www.questionpro.com/akira/TakeSurvey?id=958342
Það væri æði ef þið gætuð notað tvær mínútur af tíma ykkar í að gera þetta.
-knús!
5.5.2008
sumar & sól
Mér væri skapi næst að leggjast bara út í sólbað , eeeen vinnan kallar !
E r n a

