Blogg

20.6.2008

Nýstúdent!

Þá er útskriftin búin, MA búinn og lífið búið?

Nei djók.

Ég er allavega nýstúdent, ég trúi ekki að MA sé búið eða mig langar það ekki og ég er komin austur í sumarfrí. Útskriftin var um morguninn, svo var örlítið kaffi í íbúðinni sem familían var í og svo var matur og ball um kveldið. Mjöööög góður matur og skemmtileg dagskrá. Áður en ballið byrjaði var svo marserað í miðbænum. Ég fór samt heim um 2 því mig sárverkjaði í fæturna, enda búin að vera á háum hælum frá um klukkan 9 um morguninn.

Takk fyrir mig!


Við pabbi sæt.

E r n a

Skrifað 20.6.2008 kl. 0:06 af Erna

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.6.2008

It's almost over

Þá eru mjög erfiðar vikur að baki. Jarðaförin var mjög falleg og "ræðan" um afa góð. Erfiðast fannst mér þegar verið var að bera hann út úr kirkjunni, og svo þegar hann var látinn síga niður.
Ég skrifaði smá minningu sem ég veit samt ekki hvort ég eigi að vera að setja hérna inn á. Ég vil samt segja eitt;
Ég sakna þín svo mikið afi, og ég hugsa til þín oft á dag! Ég vildi svo óska þess að þú værir ennþá hér hjá okkur!

Samkvæmt Innunni er ég orðin útskriftarefni þar sem ég er komin með 141 einingu þó ég eigi enn eftir að fara í eitt próf og fá úr öðru. En enn sem komið er er meðaleinkunnin mín 8, og er ég bara nokkuð stolt.

Pilsið sem ég ætlaði að vera í í útskriftinni er týnt. Frábært! Það var sett í póst á mánudaginn í síðustu viku og ætti þar af leiðandi að vera löngu búið að skila sér, þar sem það tekur um tvo daga fyrir hluti að fara með póstinum austur, en það er ekki komið. Ætli ég verði þá bara ekki á brókinni eftir allt saman? Ég er allavega komin með blússu, jakka og skó.

Enska munnlega prófið er á morgun og er stressið að naga mig að innan. Ég get ekki beðið eftir að ég labbi út úr stofunni, vitandi það að ég hafi gert mitt besta og að ég sé alveg búin með MA. Það er nú samt svolítið sorglegt, því þetta hefur nú verið griðarstaður minn síðastliðin fjögur ár, en allt tekur enda eins og sagt er.

Ég ætla að hoppa í sturtu, setja í þvottavélina og kannski útbúa mér e-ð að borða. Og svo má auðvitað ekki gleyma að læra.

Bíladagar um helgina, vuhú!


E r n a

Skrifað 9.6.2008 kl. 18:36 af Erna

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 46152
Samtals gestir: 13040
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 04:28:27