Blogg

29.11.2008

billeder

Ég var rooosa dugleg í dag, að taka til. Læra líka en um þrjúleytið var byrjað að vinna uppi á þaki og það var sjénslaust að læra svo ég fór bara að taka til. Setti svo líka upp seríur í stofugluggana og bjó mér til aðventu"krans". Það má, 1. er á mánudaginn :)

En ég ætla að skella inn nokkrum myndum af íbúðinni, áður en ég skreytti.


 
Fleiri myndir eru í myndaalbúminu.

Aðventukransinn minn.

Vegbúi, sestu mér hjá
segðu mér sögur
já, segðu mér frá
þú áttir von

nú er vonin farin á brott

floginn í veg


staðreynd; þegar ég var svona 4 ára var ég K.K. aðdáandi númer eitt.


-Erna

Skrifað 29.11.2008 kl. 20:27 af Erna

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.11.2008

good shit

Ég hef tekið miklum framförum í vetur. Ég er tilbúin að viðurkenna veikleika minn því ég get svo svarið það að hann er alveg að hverfa, gæti það ef til vill tengst breyttu og bættu mataræði og reglulegri svefntímum. Já ég er farin að vakna alltaf við vekjaraklukkuna! Pabbi þurfti oft og iðulega að hringja í mig þegar ég var fyrir norðan því ég vaknaði bara ekki við vekjarahringinguna. Nú veltiði yfirleitt fyrir ykkur afhverju ég hafði ekki bara sömu hringingu í vekjaranum og símanum en málið er bara þannig að ég gerði það. Ég hef nefnilega þann eiginleika, eins og örugglega margir aðrir, að geta snooze-að í svefni en ef ég skellti á var bara hringt þangað til ég svaraði.
Núna finnst mér ekkert betra en að fara í spinning kl 6:30, sem þýðir að ég þarf að vakna kl 6. Jónína Ben er líka frábær, kemur til manns og leiðbeinir manni ef maður er ekki að gera rétt og er endalaust að hrósa manni. Aðeins meira líf í tuskunum núna, haaa. (getur maður ekki annars sagt þetta?)

Ég er búin að komast að því hvernig kaffi mér finnst best, sótsvart. Búin að gera margar tilraunir en hef ekki sett sykur útí það samt, þetta er nógu óhollt fyrir. Ég á samt örugglega eftir að halda áfram að segja að ég drekki ekki kaffi þegar ég fer í heimsóknir, því þetta er bara svona spari eða þegar ég er ótrúlega þreytt en þarf að læra.


engin breyting.

Til hammó með ammó Andri !!! :D



-Erna

p.s. ég er með karamellusjeikbragð í munninum og nei ég var ekki að éta svoleiðis.

Skrifað 25.11.2008 kl. 17:00 af Erna

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.11.2008

Kannski bara smá

Gærdagurinn var góður.
Hann byrjaði á prófi sem ég (vonandi) rústaði.
Því næst fór ég passa Halldóru gellu. Við fórum í dúkkuleik, boltaleik, kubbuðum, horfðum á mynd og dönsuðum með söngvaborg - bara fjör.
Ragna og Óskar buðu okkur síðan í kjúlla sem var alveg gríðarlega góður. Svo henti ég mér í sófann og horfði á Napoleon Dynamite. Takk fyrir mig:)

Við Gerður fórum í Body step á föstudaginn og fyrst við vorum nýjar þá kom gellan og spjallaði aðeins við okkur og sagði okkur að hafa pallana bara lága ef við værum óvanar. Ég bara; piff ég er nú ekkert óvön pöllum og hafði hann bara eins og flest allir hinir, eða ekki lágann, og allt í lagi með það. En þegar ég vaknaði ég gærmorgun hrundi ég í gólfið þegar ég ætlaði að stíga fram úr rúminu. Kálfarnir eru svooo aumir og þegar ég snerti þá finnst mér þeir vera eins og á 200 kílóa manneskju. Ég á ennþá erfitt með að labba ef ég er búin að sitja í smá tíma. Kannski spurning um að vera ekki alveg jafn góð með sig næst, hmmm.

Ég er með heimþrá, í fyrsta sinn síðan ég kom suður. Ég hef aldrei verið jafn lengi að heiman í einu og núna ooog ég get ekki beðið að komast heim og knúsa alla, fá mömmumat, sofa í hinu rúminu mínu og bara tjilla.

staðreynd; ég var búin að taka fram alla dúkkukjólana mína til að gefa ófæddri systur minni sem varð svo bara að tveimur bræðum - þeir fengu þá samt, djók.


Ein gömul af mér & Sölku :)

-Erna

Skrifað 23.11.2008 kl. 22:00 af Erna

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.11.2008

17. nóvember 2008

Strákarnir komu suður á fimmtudaginn og fóru aftur á laugardaginn, það var voða gott að fá þá en þeir stoppuðu bara alltof stutt. Það var líka algjör lúxus að láta elda fyrir sig til tilbreytingar ;)
Ég komst líka að því að hnífurinn minn er rosa beittur þegar ég skar mig svona fallega á puttanum við að skera grænmeti. Og þar sem ég á ekki plástur þá var ég endalaust að reka mig í sárið og rífa það upp, þangað til Gerður lánað mér einn í morgun, ehe.

Fyrsta prófið mitt er á morgun og það er greiningapróf. Það er ekki bara fyrsta prófið mitt í þessari prófatíð heldur er það fyrsta prófið mitt sem háskólanemi takk fyrir pent, ég er orðin alltof fullorðin! Við Gerður erum búnar að sitja sveittar niðri í skóla að greina tennur í allan dag og erum við bara orðnar nokkuð góðar í þessu held ég. Ég er bara hræddust við tímann, en við fáum 10 mín og við þurfum að greina bæði fullorðnistennurnar og barnatennurnar, úff.

Ég er heldur betur orðin stressuð. Er endalaust á klósettinu þó svo að ég drekki ekki mikið, fæ kvíðakast á kveldin þegar ég er lögst upp í rúm því mér finnst ég ekki hafa lært nóg yfir daginn og þegar ég fór til tannsa um daginn sagði hann að ég væri farin að gnísta tönnunum of mikið saman og það væru komnir svokallaðir sólblettir á tennurnar. Úps, ég hef aldrei verið svona áður!

Ætla að fara að elda og svo læra.

Staðreynd; Ég er voðalega eldhrædd, og þegar ég var lítil gat ég stundum ekki sofnað á kveldin því ég var svo hrædd um að það myndi kvikna í.


Mikið agalega var maður nú einu sinni töff.

-Erna

p.s. ég vann miða á bond í e-m aukakrónuleik og við fórum á hana í gær. Mikið djöfull er hún góð!

Skrifað 17.11.2008 kl. 18:40 af Erna

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.11.2008

gjugg í borg

Þá er ég orðin 20, er enn að melta það. Ég átti mjög fínan afmælisdag. Fór að sjálfsögðu í ríkið, og mér fannst alveg eins og ég væri að stelast! Læddist inn og rölti búðina þvera og endilanga til að reyna að finna hvað ég ætti að kaupa. Eftir margar ferðir fram og til baka, vangaveltur og pælingar hugsaði ég með mér að ég þyrfti nú að fara að velja áður en starfsfólkið kæmi og segði mér að ég þyrfti að fara því það væri bannað að hanga í ríkinu. Þegar ég fór svo og borgaði, titraði ég öll og skalf og bjóst allt eins við það að heyra; þú ert ekki nógu gömul. En gaurinn brosti bara og sagði; til hamingju með daginn. 

Við Steinar fórum svo út að borða á Ítalíu. Alveg ótrúlega góður matur þar alltaf. Mamma er samt svo gríðarlega sniðug. Hún vissi hvert við værum að fara og hvenær svo hún hringdi og lét senda mér ís á borðið. Ísinn var góður og ég labbaði södd og sæl út.

Ég hélt svo lítið afmælisteiti um helgina, það komu nokkrir að austan og Silja kom að norðan. Takk fyrir mig! Myndir eru á www.123.is/dufus , myspace & facebook. ;)

Annars er nú ekki mikið að frétta, prófin nálgast og ég er farin að verða ótrúlega stressuð! Væri alveg til í að það væri kominn 17. des, prófastressið búið og ég á leið austur. Ahh..

Hver bíður sig fram til að fara fyrir mig í búðina í dag og kannski baka nokkrar kleinur og jafnvel e-ð gott brauð fyrir mig? :)

staðreynd; ég fann rosa til í hárinu þegar var verið að klippa mig þegar ég var lítil.


Erna

Skrifað 11.11.2008 kl. 13:13 af Erna

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 46229
Samtals gestir: 13057
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 03:50:15