Blogg
29.1.2009
Einbúinn
Á þriðjudaginn s.l. var ég bara í makindum mínum að elda þegar það var bankað. Ég fór niður en það var enginn fyrir utan, en þá heyrði ég eins og það sé bankað í eldhúsgluggann [ég er á annarri hæð], skíthrædd labbaði ég upp. Þegar ég er komin inn í eldhús aftur kemur aftur svona bank í rúðuna, eru þá ekki e-r strákar úti að kasta snjóboltum í húsið. Þetta gekk í nokkra stund og alltaf heyrði ég hlátur og tal úti. Ég var næstum búin að hringja í e-n og fá að gista því ég var ekki alveg að þora að fara ein að sofa. En ég harkaði það nú af mér, ehe. :$
Krossapróf á mrg, farin að læra!
Mig langar á Palla!!!! & mig langar líka í pönnsur :)
-Erna
26.1.2009
ljóta drasl
oooo, afhverju þurfa að vera framsöguerindi og fyrirlestrar í skólum ?? eða sko, þannig að ég þurfi að flytja þannig, ein! ég meika ekki svona "standa fyrir framan allan bekkinn og tala" drasl. :$
spurning um að leggjast bara undir feld fram á vor ?
held það sé málið.
annars er haukur farinn og er voða einmanalegt hér núna, hefði alveg verið til í að hafa hann hér fram að páskum eða svo. mamma kemur svo næstu helgi, spurning um að draga hana með mér á djammið ? ehehe.
farin að taka til.
-erna
21.1.2009
örlítið
Haukur bróðir er að koma suður og verður fram á föstudag held ég. Fínt að fá kokkinn í heimsókn :) Við getum soðið okkur fisk saman, haha! Held að hann samþykki það seint.
Annars er ekkert plan fyrir kveldið nema kúra undir teppi, horfa á tv og bíða eftir að Hauxi komi. Það er líka ógeðslega kalt.
Æjj þetta er voða tilgangslaust blogg e-ð. Vildi bara láta vita að ég er á lífi ennþá :)
- Erna ;*
13.1.2009
sátt.
Kraftaverk gerast!
Ég missti 3kg í jólafríinu og ég sem að hélt að maður myndi helst þyngjast þá. Ég sá samt engan mun á mér, kannski því ég hitti mig á hverjum degi og ég hef bara verið í leggings eða íþr.buxum, en þegar ég fór í gallabuxurnar í mrg sem ég fékk í jólagjöf (og pössuðu þá) voru þær einu númeri of stórar og það er ekki beeeint flott!
Aaah lífið er gott. :)
En takmarkinu er ekki náð ennþá svo ég er alls ekki hætt að sprikla :D
- Erna
13.1.2009
jájá
Ég fór á rúntinn með Sigrúnu og Silju í kveld, sem er ekki frásögufærandi nema við erum að keyra sæbrautina á svona 70-80 og allt í einu byrjar bíllinn sem er á eftir okkur að blikka ljósunum. Ég gef náttla í en hún hættir samt ekki og það var bíll alveg við hliðina á mér svo ég gat ekki fært mig yfir á hinn kantinn. Gellan fer svo yfir á hinn kantinn og er komin við hliðina á okkur eftir smá svo Sigrún gefur henni fingurinn! haha. Þegar við stopppum svo á næstu ljósum heyrum við lag í útvarpinu sem passaði svona skemmtilega við mómentið ;
I drive really slow in the ultra fast lane
While people behind me are going insane
Ég hélt við yrðum ekki eldri við hlógum svo mikið! haha úff, gaman að þessu!
Það var samt súper gott að hitta gellurnar mínar, veit ekki hvað er langt síðan ég hitti Sigrúnu þó við búum í sama sveitarfélaginu, hehe :).
- Erna

