Blogg

24.2.2009

24. febrúar


Til hamingju með daginn pabbi minn! ;*

Láttu mömmu stjana í kringum þig í dag , átt það miklu meira en skilið. Knús!

 

Föstudagurinn var góður, fór í ræktina eftir skóla, svo á hestbak og sníkti mér svo í mat til Óskars og Rögnu og knúsaði skæruliðana þeirra og svo kom Salkan mín! Svona væri ég til í að hafa alla daga eða flesta allavega, fyrir utan "sníkja mér í mat" hlutann ;).

 

Ég er samt algjör auli, algjör! Það er búið að vera skemmtilega mikill gestagangur hérna síðustu vikuna. Salka og vinur hennar frá Englandi gistu t.d. hérna um helgina. Það var mjög gaman að hitta hana eftir aðeins of langan tíma! En allavega, þegar þau  voru svo farin á sunnudaginn, og ég lá uppi í rúmi að læra undir próf, var ég svo einmana að ég fór fram og kveikti á sjónvarpinu til að það væri eins og það væri e-r frammi að horfa á það. Haha ! æjj ég er auli!

 

Annars er ég algjörlega búin að snúa sólarhringnum við. Lærði í alla fyrrinótt undir próf sem var í gær, svaf svo daginn af mér og lærði svo í alla nótt undir próf sem ég er að fara í eftir smá. Það verður gott að sofna í kveld. Eða það verður súpergott því ég verð komin norður. Jájá ég er að fara norður, Á EFTIR! Ég veit ekki hvernig ég á að vera ég er svo spennt! Vissi ekki að þetta væri hægt sko! Hah.

 

Ætla að segja þetta gott í bili.

 

-Erna

Skrifað 24.2.2009 kl. 9:38 af Erna

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.2.2009

ahhh :D !

Jájájá, það er e-r verkefnavika í skólanum í næstu viku svooooo engir tímar á meðan, nema kennararnir ákveði annað! Ég er að hugsa um að skella mér bara til Akureyrar og vera þar í viku eða svo, er komin með far norður því Salka vinkona er að koma suður í dag og fer aftur norður á sunnudaginn, jibbý!

Eeen, það er alltaf e-ð. Ég þarf líklegast að fara í próf á þriðjudaginn, held hann sleppi því nefnilega ekki þótt það sé svona skemmtileg vika, svo ef ég þarf að fara í það þá ætla ég að reyna að redda mér norður eftir það.
Hver er game í road trip norður á þriðjudaginn ? :D plz...

Ahh, það verður svo ljúft að komast norður og eyða smá tíma með gellunum mínum! get ei beðið! iiih. :D Alltof langt síðan síðast! Og ég heimta Brynjuferð, greifapizzu, sund, kjarnaferð & jafnvel að kíkja kannski í fjallið líka ! eheh :)

Ég er alveg svona spennt sko, hah!

-Erna ;*

Skrifað 18.2.2009 kl. 18:20 af Erna

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.2.2009

sjáðu jökulinn loga...

Brumminn minn er bilaður, greyið kallinn. Fór með hann á pústverkstæði í gær því, samkvæmt minni greiningu, var komið gat á pústið & svo þurfti kallinn að skipta um allt draslið. Í dag var svo farið með hann annað því handbremsuljósið logaði alltaf. Þá lak bara olía úr e-u yfir e-ð, haha ég man aldrei neitt svona bíladót þegar það er sagt við mig, nema að afturbremsurnar voru að gefa sig. Hann verður allavega þarna þangað til á morgun!

Í gær og í dag var ég á bílnum hans afa, voða svöl á Suzuki Jimny, hah ! En hann þarf víst að nota hann líka ;) svo ég er bíllaus í borginni, jeij. Ég kann ekkert á strætókerfið og hef heyrt misgóðar sögur af því ! held ég labbi bara í skólann á mrg...

Bíllinn minn er til sölu ! Ætla að fá mér Lexus í staðinn, aaah það væri ljúft :)

Lára, Silja og pabbi komu svo síðustu helgi. Það var gaman að hitta þau öll sömul & enn betra að Silja er hér enn ! :)


knúsknús ;*

-Erna

Skrifað 11.2.2009 kl. 17:10 af Erna

Bein slóð á færslu

7 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 31
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 46248
Samtals gestir: 13059
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 15:23:22