Blogg

30.4.2009

þrítugasti apríl

Það er nú heldur betur kominn tími á smá blogg hérna! Hef aldrei látið líða svona langan tíma á milli blogga áður, en ojæja, þetta kemur fyrir á bestu bæjum!

Ég á aðeins eitt próf eftir í sumarfrí en það vonda við það er að prófið er ekki fyrr en 12. maí ! svolítið langur tími til að bíða eftir einu prófi, en ég hlýt að geta fundið mér e-ð skemmtilegt að gera, heh.

Ég er búin að vera dugleg að troða mér með Óskari á hestbak! Get svo svarið að það er fátt betra en að fara í útreiðartúr í góðu veðri, aaah love it !
Hér eru nokkrar myndir síðan við fórum í frosti og sól í vetur.

búin að leggja á.

Óskar frændi með Gullbringu og Óperu.

Frosin föst við hestinn!

Annars er ég orðin skíthrædd við the swine flu! Er að hugsa um að kaupa fuuullt af mat og loka mig svo bara af þegar hún kemur, sérstaklega þar sem ég er lasin fyrir og á þess vegna pottþétt auðveldara með að fá hana! :/ æjjj!

Hlakka til morgundagsins því Nína, Arnór og Sindri eru að koma. :) Svo ætlum við Silja að verða (meiri) pæjur og fá okkur gervineglur ;)

Segi þetta gott í bili héðan af bókhlöðunni.

-Erna

Skrifað 30.4.2009 kl. 13:10 af Erna

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 53
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 46130
Samtals gestir: 13034
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 09:43:04