Blogg

27.11.2009

I want to be forever young, do you really want to live forever ...

Það er kominn smá snjór fyrir sunnan og er ég alveg að fýla það. Mér er skapi næst að skottast út í búð, kaupa jólaöl og hengja upp seríur í kveld. Það er samt tvennt sem mælir á móti því. Í fyrsta lagi væri ég þá að skreyta fyrir desember og mér hefur alltaf fundist það of snemmt. Í öðru lagi er Axel bróðir mjög mikið á móti því og vill helst ekki skreyta fyrr en á Þorlák og ekki viljum við pirra greyið svona rétt fyrir prófatíð. Já svo í þriðja lagi, mundi það allt í einu, að þá á ég bara alls ekki nógu stórar seríur í gluggana heima þar sem gluggarnir á Njáli voru allir í minni kantinum og ég á heldur engan pening til að kaupa seríru. Svo þessi hugmynd er nokkuð sjálfdauð :)

Snjórinn er samt alls ekki mikill, er eiginlega ekki hægt að kalla þetta snjó heldur frekar föl. Það má alveg snjóa meira, hefði nú ekkert á móti því. Hinsvegar er ég kannski ekki á bestu dekkjunum þar sem það er nokkur hálka, spólaði t.d. af stað á gönguljósunum hjá háskólanum áðan. Það er aldrei hægt að gera manni alveg til geðs, hahah!

Var í prófi áðan, veit eeeekkert hvernig það gekk. En ég ætla að slaka á í kveld og horfa á vídjó og éta popp áður en lærdómurinn hefst aftur á morgun! jeeeij!


Ætla að skella í langþráðann grjónagraut :D

So long. 

Skrifað 27.11.2009 kl. 18:31 af Erna

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.11.2009

Please tell me why do birds, sing when you're near me...

Hvað er málið með að vera svona þreytt? Ég er endalaust þreytt, síþreytt og langþreytt. Ekki hjálpar að sofa lengi því þá verð ég bara enn þreyttari og ef ég sef í passlegan tíma, tja þá er ég líka þreytt. Skil ekki! Langar eiginlega bara rosalega mikið til að leggjast fram á borðið í bókhlöðunni og láta Óla Lokbrá hrífa mig á brott í 1 tíma eða svo. 


En leiðinleg byrjun á bloggfærslu, já ég veit. 

Styttist alltaf og styttist í jólafríið -fögnum! Síðasta vikan í skólanum að byrja, verkefnaskil í dag, próf á föstudaginn, próf á mánudaginn og svo aftur á föstudaginn. Verkefnaskil fyrir heimför og þá er ég voooonandi búin! Nema mér gangi hræðilega illa í prófinu á föstudaginn, í þessari viku, þá tek ég próf 11. desember. Á svo flug heim í sveitasæluna 12. des. Hef sko aaaldrei farið svona snemma í jólafrí áður takk fyrir, svo þetta verður ný upplifun. Spennandi!

Árátta mín fyrir jólalagalausum jólum er byrjuð aftur. Hah. Hefur gengið vel hingað til. Reyndar finnst mér óvenju seint skreytt í ár og svo finnst mér eins og jólalögin hafi byrjað að óma í útvarpinu fyrir þennan tíma í fyrra líka, hmm. En ég er sátt, heeh :) Hef samt ekkert á móti jólaljósunum, er eiginlega bara mjög ástfangin af því hvernig þau lýsa upp skammdegið. Sérstaklega þar sem það byrjar að birta svo seint hér á morgnanna. En snjórinn má fara að koma líka, þá verð ég virkilega sátt :) 

Nokkur ný gullkorn hafa litið dagsins ljós og mun ég bæta fleirum síðar, þegar ég man þau. :) 

Ætli það sé ekki best að henda sér aftur í lærdóminn, öööh. 


-Erna. 

Skrifað 23.11.2009 kl. 10:37 af Erna

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 53
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 46133
Samtals gestir: 13035
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 12:58:30