Blogg

8.3.2010

Ekki alveg hætt...

Jahá, mikið er búið að ské frá síðustu skrifum. Ég ætlaði að láta síðuna mína deyja hægt og rólega en ákvað að blogga fyrst Lárus minn var svo góður að skrifa í gestabókina :) 


- Ég er byrjuð að vinna, hætt í skóla, eða í pásu þið vitið. Safna smá peningum ef það er hægt. 

- Fór í klippingu um daginn og er komin með enn styttra hár, ekki strákastutt samt heeh en stutt er það þó :/

- Litlu strákarnir verða 18 í næste uge, ó god hvað ég er að verða gömul! 

Ég horfði á Óskarinn í nótt heim hjá Villa og félögum ásamt fleira fólki og vávává hvað það voru margir flottir kjólar þarna, oooh mig langaði bara í þá! Þótt sumir hafi verið alveg hræðilegir eins og gengur og gerist. Er líka frekar sátt með að Avatar hafi ekki verið valin besta myndin, þótt ég hafi ekki séð Hurt Locker, því þótt hún sé falleg og hrikalega vel gerð þá er söguþráðurinn ekkert sérstakur. Hef líka heyrt marga segja að þeir hafi séð þessa mynd áður þegar þeir horfðu á Pocahontas, hehe. Ég er líka mjög sátt með að Sandra Bullock hafi verið valin besta leikkonan (fyrir hlutverk sitt í the blind side). Hún var líka svo aðeins of svöl í þakkarræðunni sinni, aah núna verð ég bara að sjá the blind side. 

Veit ekki hvað skal segja meira, ætla bara að henda inn einu myndbandi af fréttaþætti Baggalúts. Þessi þáttur er reyndar frá 2007 en það eru komnir nýjir sem eru fáránlega góðir.

"Ég ræddi við ríflega áttræðan, kynóðan Hafnfirðing..." heheh Baggalútur er bestur!

<>


-Erna

P.s. Já Lára, ég vil koma og heimsækja þig!

P.p.s ný gullkorn hafa bæst í safnið ;)

Skrifað 8.3.2010 kl. 20:40 af Erna

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 27
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 46223
Samtals gestir: 13054
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 02:25:09