Annáll 2007

Janúar:
Prófin blessuð byrjuðu og ég náði öllu. Fór svo heim í vetrafrí sem var aðeins of gott, hékk með Arnóri og Kötu allan tímann en við vorum dugleg að kíkja á krakkana í ME.
Gullkorn;
Við Kata, Nína og Arnór vorum í bónus að versla þegar Nína segir: Hey Erna, keyptu kálhaus. Þá segjum við allar í einu: Nei við erum þegar með einn. Þá stendur Arnór og togar í vigt sem hangir úr loftinu, alveg einn í sínum heimi.

Febrúar:
Við Salka skelltum okkur í borg óttans, og hittum Magga sem við höfðum ekki séð síðan hann flúði Akureyrina. Við Kata röltum líka uppí brekku og fórum á skíði og bretti, vandamálið var bara að við runnum ekkert! Jórunn og Lára gáfu okkur svo fullan bakpoka af nammi á öskudaginn, þær sögðu að það væri í lagi því þær áttu 5 kíló heima!! við vorum líka ekki að sníkja.
Gullkorn;
Salka: í þessu húsi var jarðafarapartýið hans afa. 
Ég: Ha? meinaru ekki erfidrykkjan?
Salka: Ó, jú!

Mars:
Ég fékk uppljómun um að verða skáld og samdi nokkur ljóð sem féllu ekki beint í kramið hjá mönnum, var fljót að leggja það á hilluna. Fór svo suður í fermingu hjá frænku minni og svo heim í páskafrí.
Gullkorn;
Pabbi: Axel minn, klæjar þig undir gifsinu?
Axel: Já!
Pabbi: Já þú getur klórað þér eftir 6 vikur.

Apríl:
Páskafríið kom með páskaeggjum og leti. Fór samt á tvö böll með tveggja daga millibili, vúhú. Svo var bara haldið norður aftur og á söngvakeppni framhaldsskólanna sem var stuð út í gegn. Allir fyrir norðan og bara æði! Menningarferðin var svo líka, gist í MR, farið í leikhús, sund, og alt muligt. Gaman, gaman.
Gullkorn;
Agnes, ég og Nína vorum að rúnta og Agnes sat aftur í...
Agnes segir: Vá sjáiði hvað fjallið þarnar er flott (og bendir) 
Við Nína lítum út um gluggann: Já vá!
Þá segir Agnes: Stelpur, það er hinu megin!

Maí:
Ég fékk vægt hjartaáfall þegar Nína sá konu eitt kveldið í hvítum kjól, en við Kata sáum hana ekki! Kata mín átti svo afmæli og við fórum út að borða á Greifann. Svo var kosningapartý, eurovisionpartý, afmælispartý Kötu ooog bekkjarpartý, allt sama kveldið. Familían mín kom svo norður eina helgina og höfðu það kósý með uppáhaldinu sínu :) Svo var tekið leiktækjatjékk, sem var ekkert nema gaman! Aftur?
Gullkorn;
Ég, Sigrún og Lára vorum að labba eftir ganginum inní Gamla skóla. Ég lít upp í loftið og segi: stelpur, má ég vera heimsk ? Sigrún segir: Já, hvað? Ég: Hafa þessi ljós í loftinu alltaf verið hérna ? Sigrún: Hey, það er satt... ég hef ekki tekið eftir þeim áður! Þá segir Lára: Stelpur! Þið eruð búnar að vera hér í 3 ár og þessi ljós hafa verið allan tímann!!! haha.. =/

Júní:
Prófin voru kláruð með stæl eins og alltaf ;) svo bara keyrt austur á bóginn. Byrjaði að vinna í Olís - mjööög mikið, fór í skemmtilegt afmæli hjá Ívari Ingimars, fór norður í einn sólahring á bíladaga = geðveiki!
Gullkorn;
Ég var að gera lítinn ís í brauði þegar handfangið dettur af. Og það lak bara og lak á litla ísinn svo hann varð riiiisa stór! Ég gat ekkert gert þangað til stelpurnar komu og hjálpuðu mér.

Júlí:
Við Rakel skelltum okkur á humarhátíð á föstudegi, komum til baka á lau og svo fór ég á Iðarvallaball um kveldið. Þar hitti ég hann Steinar minn í fyrsta skipti, en talaði bara við hann - rómó! haha. Agnes yfirgaf mig og fór suður. Svo var bara vinna vinna vinna, og franskir dagar þar sem ég skemmti mér með glans.
Gullkorn;
Það kom maður í Olís í sumar og spurði mig hvort ég vissi hvar The Alumnium Factory væri. Ég játti því. Þá sagði hann; Yes? with big lake up in the mountains? Ég; What? No I don't know where that is. Þar sem ég vildi ekki að greyið maðurinn myndi villast upp á fjöllum í leit að álveri þá kallaði ég í Freyju. Gaurinn sagði það sama við hana og hún sagðist ekkert vita. Hann þakkaði fyrir og fór. Í þessu kom Kaja. Við spurðum hana hvort hún hefði hugmynd um hvað maðurinn væri að tala og sögðum henni frá þessu; Alumnium Factory with big lake up in the mountains. Þá sagði hún; Stelpur, Kárahnjúkar. Common hvernig áttum við að fatta það??

Ágúst:
Versló kom og ég vann, fór samt á ball á nesk sem var gaman. Ég var miðaseljari á styrktartónleikum Gugga, sem tókust með eindæmum vel. Afmælið hennar Nínu var haldið með glans og við Kata stóðum okkur best í dyravörslunni sem Mary-Kate & Ashley Olsen. Við Steinar felldum hugi saman, hoho.
Gullkorn;
Það komu tveir menn og kaupa sér að borða. Þeir voru í eins fyrirtækjapeysum en ég var samt ekki viss hvort ég ætti að skrifa pantanirnar á sama miðann svo ég spyr
; eruð þið saman?
Þeir ; Nei, við erum ekki saman. En við ætlum hinsvegar að borða á sama borði.

September:
Rodos kom í allri sinni dýrð! Það var ææææði og mig langar bara aftur! ahhh. Skólinn byrjaði aftur eftir of gott frí. Fluttum við Lára saman inn í litla og krúttlega íbúð.
Gullkorn;
Í herberginu okkar á hótelinu úti var ekki hægt að læsa klósetthurðinni og það var hægt að opna hana í báðar áttir, svo það ver heldur ekki hægt að loka henni alveg. Hér eru nokkrar setningar sem heyrðust oft og iðulega;
Ég ætla á klósettið, ekki koma inn!!
Stelpur, er ykkur sama þó ég kúki?
Og já, ef þið eruð að velta fyrir ykkur þá vorum við 4 stelpur saman í herbergi, hahah!!

Október:
Ég var í bíl sem velti, það var ekki gaman og hef ég verið hálf bílhrædd síðan, helst í myrkri og snjó. Jakk! Fékk síma frá Steinari, þar sem minn var að detta í sundur! Familían kom norður og leigði íbúð til að vera nær mér :) Svo fékk ég besta rúm í heimi!
Gullkorn;
Man engin =/

Nóvember:
Ég átti afmæli ! :D Fékk margar fallegar afmælisgjafir ;* Vetrarfrí sem var vel þegið. Sprengjuhallartónleikar í skólanum og þeir sönnuðu enn og aftur að þeir eru vel þess virði að vera elskaðir. Alltof mikið af verkefnaskilum var þennan mánuðinn, ojj. Árshátíðin var og tókst með eindæmum vel, gusgus spilaði, ég var í þjóðbúning og allir í stuði.
Gullkorn;
Allir leiðinlegir í þessum mán líka, man engin gullkorn.

Desember:
Verkefnaskil, verkefnaskil, verkefnaskil. Jólin komu með tilheyrandi sulli, góðum mat, pökkum og kúri. Fékk ný gleraugu, sem ég fíla mikið betur en gömlu greyin. Var svo lasin næstum öll jólin, ekki gaman. Hitti fólk og rúntaði, þó ekki jafn mikið og í fyrra. Annan í jólum ball á Eskifirði sem var gaaaaman! Hjónaballið var líka, þó ekki jafn skemmtilegt og í fyrra en skemmtilegt þó. Svo var gamla árinu skotið upp og hið nýja knúsað.
Gullkorn;
Ég var orðin svo heilaþvegin eftir blessaðan þýskulærdóm að þegar ég sá mynd af Ásgeiri Kolbeins þá sagði ég; neineinei, herra Kolbeins!

Takk æðislega fyrir árið allir sem komu við sögu, bæði nýtt og gamalt fólk ;* Vonandi verður 2008 bara ennþá betra!

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 53
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 46129
Samtals gestir: 13033
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 08:45:14